Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Úkraínu öðlaðist gildi 9. október sl. og kemur til framkvæmda 1. janúar 2009.

Búist er við að samningurinn, sem kemur í veg fyrir tvísköttun á tekjur og eignir, auðveldi viðskipti milli landanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Þar kemur fram að samningurinn, sem tekur til bæði tekna og eigna, er byggður á fyrirmynd Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um tvísköttunarsamninga sem aðlöguð var skattkerfi hvors lands um sig.

Fram kemur að helstu efnisatriði samningsins eru þau að samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 25% í félaginu sem greiðir arðinn, en í öðrum tilvikum var samið um 15% afdráttarskatt.

Þá var samið um 10% afdráttarskatt af vöxtum og þóknunum. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun.