Arion banki veitir tvöfalt fleiri íbúðalán í hverjum mánuði í ár miðað við í fyrra, segir Höskuldur Ólafsson, forstjóri bankans. Arion banki er stærsti lánveitandi íbúðalána á markaðnum á eftir Íbúðalánasjóði.

Höskuldur segir að bæði sé fólk að endurfjármagna eldri lán og nýir fasteignakaupendur að koma inn á lánamarkaðinn.