Í lífskjararannsókn Hagstofunnar kemur fram að árið 2016 höfðu um sjö af hverjum hundrað heimilum ekki getað greitt húsnæðislán eða húsaleigu á réttum tíma einhvern tímann á síðastliðnum tólf mánuðum vegna fjárhagserfiðleika. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Höfðu 8% heimila með börn verið í vanskilum með húsnæðiskostnað, um 7%  með aðra heimilisreikninga, svo sem internet eða rafmagnskostnað, og 9% verið í vanskilum á öðrum lánum en einungis 4% heimila án barna. Um 13%  heimila voru í einhvers konar vanskilum árið 2016 sem er töluverð fækkun frá árinu 2010 þegar þetta hlutfall var um 19%.

Þegar íbúar heimila eru skoðaðir kemur í ljós að í heild hefur hlutfall landsmanna í einhvers konar vanskilum minnkað úr 20% árið 2010 í 13% árið 2016.

Þar sem heimili með börn eru hlutfallslega líklegri til að vera í einhvers konar vanskilum er hlutfallið hærra á meðal barna en þeirra sem eru 18 ára og eldri.