Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,57% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.376,67 stigum. Gengi bréfa marel hækkaði um 2,09%, Nýherja um 0,87% og Fjarskipta um 0,53%.

Hins vegar lækkaði gengi Tryggingamiðstöðvarinnar um 0,90%, N1 um 0,76% og VÍS um 0,52%. Velta á hlutabréfamarkaði nam í dag 1.571,5 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf Icelandair Group, eða 726,6 milljónir króna.