Á fimmta tug fyrirtækja mun kynna starfsemi sína á sýningunni Árborg 2007 sem fram fer um helgina í íþróttahúsinu við Vallaskóla á Selfossi. Á fréttavefnum sudurland.is kemur fram að skipuleggjendur hátíðarinnar segja að aðsókn fyrirtækja sé samkvæmt væntingum. Líklegt sé að sambærileg hátíð verði haldin annað hvert ár á Selfossi.

Hátíðin opnar formlega á laugardag klukkan 11 og stendur til klukkan 18. Á sunnudag er opið frá klukkan 12 ? 18.