Tveir aðstoðarseðlabankastjórar hafa verið skipaðir í Seðlabanka Englands. Það er hluti af mikilli skipulagsbreytingu sem Mark Carney seðlabankastjóri hefur gert.

Ben Broadbent verður ábyrgur fyrir peningastefnu bankans en Nemat Shafik verður ábyrg fyrir mörkuðum og bankastarfsemi. Báðir aðstoðarbankastjórarnir munu sitja í peningastefnunefnd bankans.

Andy Haldane, yfirmaður fjármálastöðugleika, og Spencer Dale aðalhagfræðingur munu skipta um störf.