Fyrir opnun markaða í morgun var lokað fyrir viðskipti með hlutabréf í Burðarási hf., Samherja hf. og Kaldbaki hf. í ljósi þess að viðræður standa yfir um mögulega sameiningu Burðaráss hf. og Kaldbaks hf. Óvissa er enn um niðurstöðu þessara viðræðna segir í tilkynningu sem rétt í þessu barst inn í kerfi Kauphallarinnar. Áfram verður því lokað með viðskipti bréfa í þessum félögum.