Í ljósi þess að Straumur Burðarás verður fjarlægður úr OMXI6 vísitölunni við lok markaða í dag, hefur Föroya Banki verið valinn í vísitöluna, í samræmi við reglur um samsetningu og viðhald vísitölunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en nýja samsetning vísitölunnar tekur gildi frá og með morgundeginum, 11. mars.

OMXI6  verður því samansett af eftirfarandi félögum: Marel, Össur, Icelandair Group, Alfesca, Bakkavör og loks Föroya banka.

Eins og gefur að skilja verður Straumur einnig tekinn úr OMXI15 vísitölunni.