Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði við opnun markaða í Kauphöllinni. Þegar þetta er skrifað, kl. 10:10 hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 2,2% og stendur í 5.134 stigum.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað mest fyrirtækja eða um 5%. Þá hefur Exista [ EXISTA ] hækkað um 4,3%, Straumur [ STRB ] um 4% og FL Group [ FL ] um 3,6%.

Icelandic Group [ IG ] er eina félagið sem hefur lækkað en lækkunin nemur 2,9%.

Þá er velta með hlutabréf þegar orðin 11 milljarðar en fyrr í morgun var verslað með hlutabréf í FL Group fyrir 5,3 milljarða eins og vb.is hefur þegar greint frá.