Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.816 stigum.

Aðeins þrjú félög hafa hækkað í morgun. Bakkavör [ BAKK ] hefur hækkað um 2,4%, Marel [ MARL ] um 1% og Landsbankinn [ LAIS ] um 0,6%.

Þá hefur Straumur [ STRB ] lækkað mest félaga eða um 1,2%. Icelandiair Group [ ICEAIR ] og Kaupþing [ KAUP ] hafa lækkað um 0,9%.

Velta með hlutabréf er um 1,1 milljarður en þar af eru um 826 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ].