Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,6% það sem af er degi og stendur nú í 5.139 stigum.

Aðeins tvö félög hafa hækkað í Kauphöllinni í morgun. Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað um 1,4% og Atlantic Petrolium [ FO-ATLA ] hefur hækkað um 0,4%.

Þá hefur Exista [ EXISTA ] lækkað mest félaga eða um 2,5%. Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 1% og Kaupþing [ KAUP ] um 0,7%.

Velta með hlutabréf er um 2,2 milljarða en þar af eru u m 1,2 milljarðar með bréf í Kaupþing.