Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] stóð í stað við lok markaða og var í lok dags 4.295 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra.

Velta með hlutabréf var um milljarður króna. Þar af voru um 350 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], 190 með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og 175 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en mun minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,9% frá opnum gjaldeyrismarkaða og stendur gengisvísitalan í 155,5 stigum. Gjaldeyrismarkaður er þó enn opinn.