Útboð á 30% hlutafjár Skipta, móðurfélags Símans, hefst nú í dag og stendur yfir þar til kl. 16:00 á fimmtudaginn 13. mars. Fyrirhugað er að hefja viðskipti með bréf félagsins í Kauphöllinni þann 19. mars næstkomandi.

Skipti verður við skráningu fjórða stærsta rekstrarfélagið í Kauphöllinni en markaðsvirði Skipta, miðað við útboðsgengið sem er á bilinu 6.64 -8,10 kr. á hlut, er metið á bilinu 49 - 60 ma kr.

Útboðið nú er í samræmi við samning Skipta og íslenska ríkisins frá 5. ágúst 2005 um að almenningi standi til boða að kaupa 30% í félaginu í almennu útboði við skráningu á markað. Þetta kemur fram í morgunkorni Glitnis.

Útboðið fer fram með svokallaðri áskriftarsöfnun en lágmarks markaðsvirði sem almenningur getur skráð sig fyrir er 100 þúsund krónur og fagfjárfestar geta að lágmarki skráð sig fyrir 25 milljónum króna.