Útflutningsráð hefur verið duglegt við það undanfarin ár að fara með íslenskar viðskiptasendinefndir á framandi slóðir. Þetta ár verður engin breyting þar á en Útflutningsráð hyggst meðal annars fara í fræðsluferð til Kasakstan sem varð þekkt að endemum vegna kvikmyndarinnar Borat sem frumsýnd var á síðasta ári.

Aðrar viðskiptasendinefndir á árinu 2007 -- samkvæmt upplýsingum Útflutningsráðs eru:
· Rúmenía
· N-England, ferðaþjónustufyrirtæki
· Þýskaland
· Brasilía, fræðsluferð
· USA
· Indland
· Ungverjaland
· Kína