Heildarútflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi var 173,3 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu nam 93,1 milljarði. Þetta kemur fram í nýjum bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands .

Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 80,2 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi en var jákvæður um 69,9 milljarða á sama tíma árið 2013 á gengi hvors árs.

Ferðaþjónusta er í fyrsta skipti stærsti þjónustuliður í bæði inn- og útflutningi og var afgangur af henni 37,4 milljarðar. Útflutningur hennar nam 66,9 milljörðum og innflutningur 29,5 milljörðum. Afgangur vegna ferðaþjónustu voru rúmir 27 milljarðar á sama ársfjórðungi árið 2013.

Mestur afgangur var hinsvegar af samgöngu- og flutningaþjónustu eða 47,4 milljarðar. Útflutningur þeirra nam 64,9 milljörðum og innflutningur 17,5 milljörðum. Önnur innflutt viðskiptaþjónusta nam 27,5 milljörðum og útflutningur 10,3 milljörðum á þriðja ársfjórðungi. Halli var mestur af þeirri þjónustu eða 17,3 milljarðar.