Actavis hefur markaðssett þvagfæralyfið Finasteride í 14 Evrópulöndum og er sala lyfsins nú þegar hafin. Actavis setti lyfið á markað í Þýskalandi, Bretlandi, Hollandi og Danmörku, um leið og einkaleyfið rann út. Actavis hefur markaðssett vel á annað hundrað samheitalyf á hina ýmsu markaði félagsins það sem af er ári, og að því er kemur fram í tilkynningu Actavis er stefnt að því að markaðssetja yfir 500 lyf á árinu öllu.


Actavis selur Finasteride undir eigin merkjum í 12 löndum beggja vegna Atlandshafs, en lyfið er einnig selt til þriðja aðila í átta löndum, þar sem það er markaðssett í umbúðum annarra lyfjafyrirtækja.

Finasteride, sem er í styrkleikanum 5 mg í töfluformi, er samheitalyf frumlyfsins Proscar® frá frumlyfjafyrirtækinu MSD, en lyfið er notað við góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli. Lyfið var þróað á Íslandi, frásogsprófanir voru gerðar í Suður-Afríku og töflurnar eru framleiddar á Indlandi.