Valgeir Baldursson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjárhagssviðs Spron og mun taka við af Hörpu Gunnarsdóttur sem sinnt hefur starfinu frá nóvember 2006 jafnhliða því að vera framkvæmdastjóri þjónustusviðs sem hún gegnir áfram, segir í fréttatilkynningu.

Valgeir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk MBA prófi frá Háskóla Reykjavíkur 2007. Valgeir hóf störf hjá Spron í mars 2006 í fyrirtækjaráðgjöf hjá SPRON Verðbréfum.  Frá október 2007 hefur Valgeir gengt starfi framkvæmdastjóra fjárfestinga SPRON.

Áður en Valgeir hóf störf hjá SPRON var hann eigandi og framkvæmdastjóri Álits ehf. frá 2003-2005.

Valgeir tekur við starfi framkvæmdastjóra fjárhagssviðs þann 15. janúar nk.