VBS fjárfestingarbanki (VBS) hefur átt endurhverf viðskipti af tvennum toga, annars vegar við Landsbankann og hins vegar við Kaupþing.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VBS vegna frétta af endurhverfum viðskiptum

Samkvæmt tilkynningunni er annars vegar um að ræða 15 milljarða króna skuldabréf sem gefið var út af Landsbanka Íslands.

Í samningi milli VBS og Landsbanka Íslands hf. um kaup bréfsins er sérstakt ákvæði sem heimilar VBS að skuldajafna milli aðila.

Þá kemur fram að VBS hefur fyrir nokkru sent tilkynningu til Landsbanka þar sem lýst er yfir skuldajöfnun, en skuld VBS við Landsbankann var hærri á skuldajöfnunardegi en skuld Landsbankans við VBS samkvæmt framangreindu skuldabréfi.

Hins vegar á grundvelli skuldabréfs útgefnu af Kaupþingi að fjárhæð 125.000.000 Bandaríkjadala sem sá síðarnefndi lánaði VBS gegn tryggingu í reiðufé og víxli útgefnum af VBS.

Fram kemur í tilkynningunni að VBS hefur nú, í ljósi breytinga á frádragi af umræddu bréfi í veðlánum við Seðlabanka, óskað eftir því að Kaupþing skili umræddu skuldabréfi gegn afhendingu þeirra trygginga sem VBS lét af hendi.

Þá kemur fram að þetta sé heimilt með eins dags fyrirvara skv. samningi þeim sem gerður var um lánið á bréfinu.

Einnig kemur fram í tilkynningu VBS að ekki var um eiginleg kaup VBS á framangreindu skuldabréfi útgefnu af Kaupþingi og er krafa VBS því eingöngu um skil á tryggingum.

„Verði staðið við gerða samninga er eigið fé VBS ekki í hættu vegna þessa. En vanefndir á samningnum af hálfu mótaðila VBS hefðu neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins,“ segir í tilkynningu VBS.