Mikil hækkun hefur orðið á gengi krónunnar nú í morgunsárið, en það sem af er morgni hefur það styrkst um rúmlega 1,7%, sé tekið mið af gengisvísitölu krónunnar sem vegur saman helstu viðskiptamyntir landsins. Greining Íslandsbanka bendir á það í Morgunkorni sínu í dag að svo mikil hreyfing á einum viðskiptadegi hefur ekki verið í þessa átt síðan seint í ágúst árið 2009, þ.e. að því gefnu að styrkingin gangi ekki til baka síðar í dag.

Í Morgunkorninu segir að þessa styrkingu megi líklega rekja til inngrips af hálfu Seðlabanka Íslands nú í morgun, en í dag seldi bankinn a.m.k. 9 milljónir evra á millibankamarkaði í þremur viðskiptum. Þá telur greiningardeilsin líklegt að fleiri seljendur hafi slegist í hópinn á markaði, en til samanburðar styrktist krónan um 0,5% við 6 milljóna evra inngrip Seðlabankans í lok síðasta árs.

Seðlabankinn með takmarkað svigrúm til að standa geng útflæði

Um klukkan 11:30 í dag var veiking krónu í janúar nú að fullu gengin til baka, og er gengi hennar að jafnaði svipað og í fyrstu viku janúarmánaðar.

Í Morgunkorninu segir að tímasetning inngripsins nú sé athyglisverð í kjölfar talsverðrar veikingar krónu í gær og fyrradag. „Eftir inngrip Seðlabankans á gamlársdag sagði Seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, að inngripin hefðu komið í kjölfar útflæðis sem bankinn taldi tímabundið. Hugsanlega er sama uppi á teningnum nú, og Seðlabankinn telur sig hafa upplýsingar um betri tíð í gjaldeyrisflæði til og frá landinu sem hann vill með þessum hætti miðla inn á markað. Í öllu falli hefur bankinn takmarkað svigrúm til þess að standa gegn viðvarandi útflæði gjaldeyris með samsvarandi sölu úr skuldsettum gjaldeyrisforða sínum.“