Gengisvísitalan var 171,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis  sem er hæsta gildi gengisvísitölunnar við lok markaða frá upphafi.

Þannig hefur krónan því veikst um 1,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en um 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð. Miðað er við lokagildi á mörkuðum.

Gildi gengisvísitölunnar við lok markaða er sem fyrr segir það hæsta frá upphafi. Þá fór gildi hennar í 172,8 um tíma í dag. Þá var gildi gengisvísitölunnar við lokun markaða í gær einnig það hæsta sem sést hefur, 169,9 stig en gengisvísitalan fór í rúm 171 stig innan dags.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 171,5 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var í gær 171 stig sem einnig var hæsta opinbera gengið til þessa.

Þetta er í þriðja skiptið á einni viku sem opinbert gengi nær lágmarki. Á miðvikudag fyrir viku var opinbert gengi Seðlabankans 169,2 stig sem var það hæsta til þessa.

Krónan hefur nú veikst um 1,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 92,3 krónum, Evran í 130,5 krónum og Sterlingspundið í 164,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 82,5 krónum, japanskt jen í 0,88 krónum og danska krónan í 17,5 krónum.