Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu minnkaði lítillega í vikunni og nam 895 milljónum króna.Veltan minnkaði því um 17% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Veltan í síðustu viku nam rétt rúmum milljarði og hafði vikuveltan þá ekki farið yfir milljarð frá því í byrjun desember.

Meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu fjórar vikur um 825 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember og fyrstu vikur þessa árs.

Til merkis um það er meðalvelta síðustu 12 vikna um 900 milljónir en í þar síðustu viku fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 68% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 34 í vikunni sem leið en 29 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 29 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 26,3 milljónir króna og lækkar um 11 milljónir milli vikna. Þetta er nokkuð undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið 29,5 milljónir frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 73% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.