Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2011 var 428. Heildarvelta nam 12,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 3,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.Þetta kemur fram í gögnum Þjóðskrár.

Þegar ágúst 2011 er borinn saman við júlí 2011 fækkar kaupsamningum um 4% og velta eykst um 3,7%. Í júlí 2011 var 446 kaupsamningum þinglýst, velta nam 12,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27 milljónir króna.

Þegar ágúst 2011 er borinn saman við ágúst 2010 fjölgar kaupsamningum um 102,8% og velta eykst um 93,4%. Í ágúst 2010 var 211 kaupsamningum þinglýst, velta nam 6,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,6 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 29 í ágúst 2011 eða 7,1% af öllum samningum. Í júlí 2011 voru makaskiptasamningar 22 eða 5,2% af öllum samningum. Í ágúst 2010 voru makaskiptasamningar 38 eða 18,9% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.