Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í júlí og ágúst 2014 nam rúmum 610 milljörðum króna sem er 4,2% aukning miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Á síðustu tólf mánuðum hefur veltan aukist mest í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, eða sem nemur 16,1%. Einnig er mikil aukning í rekstri gististaða og veitingastaða og í flokknum námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu, samanborið við tólf mánuði þar á undan.