Greining Íslandsbanka verðmetur Haga á 18,8 milljarða króna, sem er um 45% yfir markaðsvirði miðað við síðustu viðskipti með bréf félagsins sem og yfir skráðu lágmarksútboðsgengi í hlutafjárútboðinu sem lýkur kl. 16 í dag. Verðmatsgengi greiningar Íslandsbanka er 16 krónur á hlut, lágmarksgengi í útboðinu er 11 krónur á hlut en hámarksgengi 13,5 krónur.

Nánar um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð.