Lagt verður til að óheimilt verði að bjóða neytendum verðtryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára, að lágmarkstími nýrra verðtryggðra neytendalána verði lengdur í allt að tíu ár og að takmarkanir verði gerðar á veðsetningu vegna verðtryggðra íbúðalána.

Þetta kemur fram í svari Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám verðtryggingar á neytendalánum.

Annars vegar spurði Sigríður hvað liði áformum og aðgerðum um afnám verðtryggingar á neytendalánum. Í svari Sigmundar kemur fram að unnið sé eftir áætlun sem samþykkt var í ríkisstjórn 9. maí 2014. Áætlunin byggist á niðurstöðum sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á nýjum neytendalánum. Segir hann áætlunina byggjast á fjórum liðum:

„a. Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun hafa umsjón með vinnu við að óheimilt verði að bjóða neytendum verðtryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára, að lágmarkstími nýrra verðtryggðra neytendalána verði lengdur í allt að 10 ár og að takmarkanir verði gerðar á veðsetningu vegna verðtryggðra íbúðalána. Í þingmálaskrá er gert ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á lögum um vexti og verðtryggingu á vorþingi.

b. Velferðarráðuneytið mun hafa umsjón, í framhaldi af skýrslu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála, með aðgerðum til að auka hvata til töku og veitingar óverðtryggðra lána. Hugað er að aðgerðum til að auka hvata til töku og veitingar óverðtryggðra lána í tengslum við viðamiklar breytingar á framtíðarskipan húsnæðismála.

c. Forsætisráðuneytið mun skipa starfshóp um leiðir til að sporna gegn því að sjálfvirkar hækkanir á vöru og þjónustu og tenging ýmissa skammtímasamninga við vísitölu neysluverðs kyndi undir verðbólgu. Starfshópurinn var skipaður í júlí 2014. Gert er ráð fyrir að hann muni skila af sér á næstu vikum.

d. Ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna mun skipa Verðtryggingarvakt til að tryggja samfellu í framgangi áætlunar um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum.“

Vinna við áætlun um fullt afnám eigi síðar en 2016

Hins vegar spurði Sigríður hvenær áætlað sé að verðtrygging á neytendalánum verði afnumin að fullu. Segir Sigmundur að meiri hluti sérfræðihóps um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum hefði lagt til að vinna við áætlun um fullt afnám yrði hafin eigi síðar en á árinu 2016 þegar reynsla yrði komin á þær breytingar sem hópurinn taldi að ætti að gera í fyrsta áfanga.

„Breytingar í fyrsta áfanga felast í að:

a. óheimilt verði að bjóða neytendum verðtryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára,

b. lágmarkstími nýrra verðtryggðra neytendalána verði lengdur í allt að 10 ár,

c. takmarkanir verði gerðar á veðsetningu vegna verðtryggðra íbúðalána og

d. hvatar auknir til töku og veitingar óverðtryggðra lána,“ segir í svari Sigmundar.