Verkfræðistofan Verkís opnaði formlega útibú í Osló í Noregi síðastliðinn fimmtudag til þess að sinna ört vaxandi starfsemi þar í landi. Egill Viðarsson, viðskiptastjóri Verkís í Noregi, sagði við opnunina að fyrirtækið hefði undanfarin fimm ár sinnt verkfræðiráðgjöf í Noregi og væri því formleg opnun útibúsins kærkomin.

Það sem af er árinu hefur Verkís fengið yfir 30 ný verkefni frá Noregi og undirritað yfir 20 rammasamninga.   Um mjög fjölbreytt verkefni er að ræða þar sem yfir 100 sérfræðingar á öllum sviðum Verkís á Íslandi taka að staðaldri þátt í.

Meðal nýrra verkefna má nefna hönnun á skólum í sveitarfélögunum Asker og Kongsberg, eftirlit með hreinsistöðvum og hönnun á metangasverksmiðju í Bergen, 3 veghönnunarverkefnum fyrir vegagerðina, svo eitthvað sé nefnt.

Verkís er einnig með starfsemi á Íslandi, Grænlandi, Póllandi og Chile.