Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2007 var 396 milljarðar króna sem er aukning um tæpa 40 milljarða króna frá árinu 2006 og 9,3% aukning að raungildi.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þá kemur fram að heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2007 án fiskvinnslu var 281 milljarður króna en 242 milljarðar króna árið 2006, sem er aukning um rúma 39 milljarða króna milli ára.

Í 13 atvinnugreinum af 17 jókst verðmæti seldra framleiðsluvara.

Hlutdeild einstakra atvinnugreina í söluverðmæti framleiðsluvara er nokkuð stöðug milli áranna 2006–2007 fyrir utan mikla aukningu í framleiðslu málma.

Hlutdeild matvæla- og drykkjarvöruiðnaðar er stærst, með 47,1% af heildarverðmæti árið 2007, þar af 29,1% vegna fiskvinnslu.