Að frumkvæði menntamálaráðuneytisins hafa forystumenn Tækniháskóla Íslands (THÍ) og Háskólans í Reykjavík (HR) átt í viðræðum undanfarnar vikur um samvinnu eða samruna þessara tveggja háskóla. Það er mat forystumanna skólanna jafnt sem ráðuneytisins að sóknarfæri fyrir íslenskt samfélag felist í sameiningu skólanna. Með samruna THÍ og HR yrði til stór og öflugur háskóli er hefði náin tengsl við íslenskt atvinnulíf og gæti gegnt mikilvægu hlutverki á mörgum sviðum í íslensku háskólasamfélagi segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Nemendur HR eru nú 1.400 og nemendur THÍ tæplega 1000. Nýr háskóli á grunni þessara tveggja skóla yrði því einn af stærstu háskólum landsins.

"Síðastliðið vor varð ljóst að framtíðarhugmyndir stjórnenda háskólanna tveggja hnigu að mörgu leyti í sömu átt. Innan HR og THÍ voru uppi hugmyndir um að efla nám á sviði tæknimenntunar og stefna að kennslu í verkfræði. Þá hafa báðir skólarnir unnið að því á síðustu árum að byggja upp öflugt nám á sviði rekstrar- og viðskiptafræða og eru greinarnar nú kenndar á báðum stöðum," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

ÞArs egir ennfremur að í ljósi þessa taldi menntamálaráðherra rökrétt að kanna hvort flötur væri á samstarfi og jafnvel samruna skólanna áður en lengra væri haldið. Smæð íslenskra háskóla hefur að sumu leyti staðið þeim fyrir þrifum.

Á Íslandi eru nú starfræktar níu kennslustofnanir á háskólastigi og hafa undanfarin ár einkennst af mikilli grósku og nýsköpun í háskólaumhverfinu. Sterk rök hníga hins vegar að því að ávinningur kunni að vera af aukinni samvinnu milli háskóla. Íslenskir háskólar eru ekki aðeins að keppa á íslenskum markaði heldur einnig á alþjóðlegum markaði um rannsóknarfé, kennara og nemendur. Það er því hagur skólanna að sameina kraftana til frekari uppbyggingar samhliða því sem gæði námsframboðs, kennslu og rannsókna eru aukin.

Að loknum óformlegum þreifingum var ljóst að kostir samruna voru jafnvel fleiri en talið var í fyrstu og því ákveðið að hefja nú formlegar viðræður um samruna skólanna tveggja.

Samráð hefur verið haft við Verslunarráð Íslands, sem rekur Háskólann í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Hafa allir þeir er að málinu hafa komið lýst yfir ánægju með að hefja formlegar viðræður um málið og telja að samruni skólanna geti styrkt stöðu viðskipta- og tæknimenntunar á Íslandi og þar með styrkt samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs.

Formlegum viðræðum verður haldið áfram á næstu vikum og stefnt er að því að niðurstöður þeirra liggi fyrir í lok september.