Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,7% og er 5.218 við opnun markaðar.

Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 1,6%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 1,5%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 1,2%, Össur [ OSSR ] hefur hækkað um 1,1% og Landsbankinn [ LAIS ] hefur hækkað um 0,7%.

Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 2,7% og Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 0,7%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,19% og er 150,8 stig en gjaldeyrismarkaðurinn opnar klukkutíma fyrr en hlutabréfamarkaðurinn.