Slitastjórn Glitnis segir að viðræður um möguleg kaup á Íslandsbanka einskorðist ekki við aðila frá Asíu. Rætt hefur verið við fjárfesta annarsstaðar á Norðurlöndunum, í Ameríku og í Asíu.

Í tilkynningu frá slitastjórn Glitnis segir að leitast sé við að hámarka virði þrotabúsins og sala eigna hefur verið eitt af meginatriðum þeirrar stefnu. Þegar Glitnir tók við 95% af hlutabréfum Íslandsbanka í lok árs 2009 hafi því verið lýst opinberlega að hlutabréfaeignin yrði til sölu þegar fram liðu stundir og þess vænst að söluferlið gæti tekið 3 til 5 ár.

„Vegna frétta í fjölmiðlum staðfestir slitastjórn að kannaðir hafa verið ýmsir kostir varðandi hlutabréfaeignina,  meðal annars hugsanleg sala til alþjóðlegra fjárfesta. Rætt hefur verið við fjárfesta annars staðar á Norðurlöndum, í  Ameríku og í Asíu. Viðræðum við nokkra þeirra er haldið áfram í trúnaði og einskorðast þær ekki við fjárfesta í Asíu,“ segir í tilkynningu frá Glitni.

Þá segir slitastjórnin að ekki sé á þessu stigi hægt að fullyrða að þessar viðræður leiði til þess að formlegt tilboð verði lagt fram af hálfu tiltekins hóps fjárfesta, né tiltaka á hvaða verði hugsanleg viðskipti með hluti í Íslandsbanka gætu átt sér stað.

Þá segir að í febrúar síðastliðinn hafi slitastjórn staðfest að viðræður væru hafnar við hóp af fjárfestum undir forystu Framtakssjóðs Íslands um kaup á hlutum Glitnis í Íslandsbanka. Þeim viðræðum hefur ekki verið haldið áfram.