Viðskiptablaðið hefur samið við breska blaðið Financial Times um birtingu efnis frá síðarnefnda blaðinu. Viðskiptablaðið mun framvegis birta fréttaskýringar og greiningar frá FT og mun það gera blaðinu kleift að sinna betur svæðum og umfjöllunarefnum sem annars hefur verið erfitt að sinna.

Fyrsta greinin birtist í blaðinu í dag og fjallar um fjárfestinn Carl Icahn, sem lék lykilhlutverk í kaupum Actavis á lyfjafyrirtækinu Forest Laboratories. Icahn þykir mjög umdeildur fjárfestir.