Viðskiptaráð Íslands hefur ályktað að afleiðingar þess að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða með fjárframlögum úr ríkissjóði verða óhjákvæmlega hærri álögur eða skert þjónusta í öðrum málaflokkum.

Það stendur til að taka ekki upp náttúrupassa heldur í staðinn fjármagna uppbyggingu og viðhaldi ferðamannastaða með fjárframlögum úr ríkissjóði. Kostnaður vegna aukins átroðnings á helstu ferðamannastöðum verður því borinn af skattgreiðendum í stað þeirra sem njóta þjónustunnar.

Viðskiptaráð lýsir yfir vonbrigðum með þessa niðurstöðu, en ráðið telur gjaldtöku á ferðamannastöðum vera bestu leiðina til að fjármagna uppbyggingu ferðaþjónustu. Þar sem slík gjaldtaka leggst á þá sem njóta ávinningsins af uppbyggingu ferðamannastaða, og getur dregið úr átroðningi á vinsælustu áfangastaðina og skapar hvata fyrir greinina til að koma á fót nýjum áfangastöðum. Viðskiptaráð telur að með beinum framlögum úr ríkissjóði verður engu þessara markmiða náð.

Viðskiptaráð gerði athugasemdir við útfærslu náttúrupassa í umsögn um fyrirliggjandi frumvarp en studdi engu að síður framgöngu þess. Frumvarpið í núverandi mynd væri fyrsta skref í átt að þróaðara kerfi sem nær fram markmiðum um náttúruvernd samhliða aukinni framleiðni og verðmætasköpun án þess að byrðar skattgreiðenda þyngist.

Viðskiptaráð vonar að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína og innleiði markaðsmiðaða lausn í stað beinna ríkisframlaga með tilheyrandi aukningu á almennri skattbyrði. Einungis þannig verði hægt að skapa umgjörð fyrir sjálfbæra uppbyggingu ferðamannastaða til frambúðar.