Gengi hlutabréfa í öllum fyrirtækjum nema Marel lækkaði í dag. Gengi bréfa Marel hækkaði um 1,61% í 161 milljóna króna viðskiptum.

Mest viðskipti vorum með bréf í Högum í dag en þau námu 424 milljónum króna. Gengi bréfanna lækkaði um 0,93%. Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 0,53% í 389 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði gengi bréfa í Reginn um 0,47% í 191 milljóna króna viðskiptum.

Gengi bréfa í Marel hafði lækkað í gær og á föstudag eftir að afkomuviðvörun fyrir fjórða fjórðung hafði verið send út.