Seðlabanki Íslands mun væntanlega greina frá næstu stýrivaxtaákvörðun sinni á fimmtudagsmorgun. Fæstir gera þó ráð fyrir miklum breytingum en stýrivextir standa nú í 12 prósentum og verðbólga í síðustu mælingu var 11,3%. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist ekki búast við breytingum þó þær séu löngu tímabærar.

Vilhjálmur segir að sú verðbólga sem Íslendingar upplifi nú skapist ekki af umframeftirspurn og þenslu eða kostnaðarhækkunum innanlands. Hún stafi fyrst og fremst af aðlögun að lágu gengi krónunnar. Því haldi rök Seðlabankans ekki fyrir háum stýrivöxtum.

„Hugmyndafræði bankans hefur verið á þessum villigötum og ég er ekki farinn að sjá það að hún sé eitthvað að breytast.

Það liggur fyrir að það er enginn rekstur sem stendur undir svona vöxtum. Fyrirtæki sem gætu tekið lán og gætu verið að fjárfesta eru ekki að gera það þessum lánskjörum. Því er staðan þannig í bönkunum að þeir eru með fullar hendur fjár sem enginn vill taka að láni.

Það er ekkert óeðlilegt að vextir yrðu eitthvað í námunda við það sem er á evrusvæðinu. Þegar þeir eru orðnir meiri en sem nemur um 3-4% umfram það sem ríkir á evrusvæðinu eru þeir orðnir allt of háir.

Þetta snýst um samkeppnishæfni. Þó gengið sé mjög lágt og útflutningsgreinar mjög samkeppnishæfar í verði, þá eru menn líka að keppa um aðgang að fjármagni og vexti,” segir Vilhjálmur.

„Annars hefur sú uppstokkun og endurskipulagning á fyrirtækjum sem blasað hefur við alveg frá hruninu í haust að þörf væri á, ekki enn átt sér stað nema í litlu mæli. Sú vinna er að miklu leyti eftir. Það er bara vonandi að sú vinna geti farið fram án þess að það verði allt of mikil röskun þannig að störf tapist ekki.”