Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þess efnis að gerð verði krafa til ríkisins um að stórum hluta söluverðmætis eigna á Ásbrú verði varið til uppbyggingar á nærþjónustu á svæðinu.

Var bent á að Reykjanesbær hafi byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármunum verður úthlutað. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag.

Fjármála- og efnahgasráðuneytið hafði óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eignum á Ásbrúarsvæðinu. Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið 2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun þess.

Í bókun bæjarfulltrúa sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar í gær var bent á að svæðið hefur þróast mikið í kringum Keili, frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt og nú sé svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu sé selt. Segja þeir mikinn áhuga meðal fjárfesta og fyrirtækja í flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því húsnæði sem eftir er.