Lengja verður flugbrautina á Akureyri til að auðvelda millilandaflug. Þetta er ályktun sameiginlegur fundar ferðaþjónustaðila á Norðurlandi sem haldinn á Hótel KEA Akureyri 2. maí. Fundurinn skoraði á alþingismenn og samgönguyfirvöld að hefja tafarlaust framkvæmdir við lengingu flugbrautar á Akureyrarflugvelli þannig að Norðlendingum, í sinni atvinnuuppbyggingu, verði gert kleift að efla og þróa ferðaþjónustu á svæðinu.