Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hyggst veita Vinnumálastofnun allt að 100 milljóna króna viðbótarfjármagn sem nýtt verður til að ráða 35 einstaklinga til starfa að því er segir á vef stjórnarráðsins en Kjarninn greindi fyrst frá.

Í heildina hefur stofnuninni borist 33.800 umsóknir um atvinnuleysisbætur með minnkuðu starfshlutfalli síðan opnað var fyrir umsóknir um úrræðið, en stofnunin segist nú hafa mikla þörf fyrir aukinn mannafla, sem lagt verður áhersla á að ráða úr hópi skráðra atvinnuleitenda.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá sama dag og opnað var fyrir umsóknir um hlutabætur, sem hægt er að reikna út áhrifin af með þar til gerðum reiknivélum , höfðu þá 4 þúsund manns sótt um bæturnar, en tæpri viku seinna var fjöldinn kominn upp í 25 þúsund .

Til viðbótar við það hefur stofnuninni borist um 2.200 umsóknir umsóknir frá einstaklingum sem eru að fullu skráðir án atvinnu sem er viðbót við þá 14.200 einstaklinga sem þegar voru að fullu skráðir án atvinnu í lok mars 2020. Miðað við núverendi forsendur munu því um 50.000 einstaklingar fá greiddar atvinnuleysisbætur að fullu eða að hluta á móti skertu starfshlutfalli í lok apríl.

Ráðningarnar nú eru tímabundnar til sex mánuða, en markmiðið er að efla ýmsa stoðþjónustu eins og tölvuþjónustu og upplýsingagjöf um ýmsa tölfræði, auk þess sem mikilvægt sé að vinna spár um ástand og horfur á vinnumarkaði til framtíðar litið.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra segir COVID-19 faraldurinn hafa haft mjög mikil áhrif á vinnumarkaðinn.

„Heilu atvinnugreinarnar eru lamaðar og ljóst er að sá fjöldi fólks sem mun þurfa að nýta sér þjónustu Vinnumálastofnunar er án fordæma,“ segir Ásmundur Einar.

„Þetta hefur haft í för með sér gríðarlegt álag á stofnunina og þvi nauðsynlegt að styrkja frekar þjónustu hennar. Í öllum okkar aðgerðum er það fyrst og fremst skylda okkar að tryggja stöðu heimilanna og framfærslu fjölskyldna í landinu og það ætlum við að gera.”