Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, hefur óskað eftir skriflegu svari frá fjármála- og efnahagsráðherra um starfsemi skilanefndar SPRON, síðar Dróma. Fyrirspurnin er í fimm liðum og hljóðar svo:
- Hvernig var staðið að skipun í skilanefnd SPRON, síðar Dróma? Var skipað í hana á einhvern annan hátt en í skilanefndir stóru föllnu bankanna og gilda önnur lög eða reglur um starfsemi Dróma en skilanefndir stóru bankanna?
- Er það réttlætanlegt og eðlilegt séð frá sjónarhóli ráðherra og öðrum eftirlitsaðilum ríkisins, t.d. Fjármálaeftirlitinu, að útibústjóri SPRON og stjórnarmaður í stjórn SPRON á einhverjum tíma sé starfsmaður skilanefndar SPRON/Dróma?
- Eiga fyrrverandi stjórnarmenn eða tengdir aðilar í stjórn SPRON einhverjar kröfur, t.d. launakröfur, í þrotabú SPRON? Ef svo er, hve margar og hversu háar eru þær?
- Hvaða fyrrverandi stjórnarmenn SPRON hafa unnið fyrir og eru hugsanlega enn starfsmenn hjá þrotabúi SPRON/Dróma?
- Hve margir einstaklingar og lögaðilar, sem voru með gjaldeyrislán hjá SPRON og annaðhvort greiddu þau upp eða skuldbreyttu þeim í íslensk verðtryggð lán, hafa ekki fengið endurútreikning og leiðréttingu á ólöglegum gjaldeyrislánum hjá skilanefnd SPRON/Dróma?