Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA), hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs á aðalfundi SA 6. mars næstkomandi. Hann hefur verið formaður SA frá árinu 2009.

Fram kemur í tilkynningu frá SA að því til viðbótar hafi Vilmundur setið í stjórnum hagsmunasamtaka atvinnulífsins allt frá árinu 1992. Hann var jafnframt formaður Samtaka iðnaðarins á árunum 2000 til 2006.