Starfandi mönnum hefur fjölgað um 7.700 frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Þetta er aukning um 4,9%. Á sama tíma og íbúum fjölgar og atvinnuþátttaka vex hefur vinnutími aukist sömuleiðis. Hann einn gefur til kynna 1,2% aukningu milli ára. Þetta kemur fram í vefriti Fjármálaráðuneytisins.

Af aukningunni koma 800 úr röðum þeirra sem áður töldust atvinnulausir. Meiri atvinnuuþáttttaka í ár en á sama tímabili í fyrra skýrir 2.100 til viðbótar. Náttúruuleg fjölgun fólks á vinnualdri, að teknu tilliti til atvinnuþátttöku, skýrir um 3.000 manna aukningu á fjölda starfandi. Þá er eftir um það bil 1.800 manns, um fjórðungur af fjölguninni, sem hægt er að skýra með aðflutningi til landsins. Fjölgun fólks á vinnualdri af þeim orsökum yfir árið 2005 telst hafa verið um 3.500 sem gæti bent til a.m.k. 2.800 manna fjölgunar á fjölda starfandi sem er töluvert umfram það sem álykta má af vinnumarkaðsskönnunum.

Þar gæti skýringin verið sú að kannanirnar nái ekki eins vel til erlends vinnuafls og annarra hluta vinnuumarkaððarins, þrátt fyrir það að Hagstofan reyni sitt besta til að ná til þeirra eins og annarra.

Á sama tíma og íbúum fjölgar og atvinnuþátttaka vex hefur vinnutími aukist sömuleiðis. Hann einn gefur til kynna 1,2% aukningu milli ára eins og áður sagði. Þegar allt er talið óx vinnumagn sem unnið var á fyrsta ársfjórðungi í ár um 6,2% frá sama tímabili í fyrra. Vinnumagn óx um tæp 4% í fyrra frá árinu þar á undan og ef svo heldur sem horfir gæti vöxturinn í ár orðið meiri en það að því er kemur fram í vefritinu.