Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan september 2008, er 447,7 stig.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í morgun en þar kemur fram að þetta hækkun um 1,5% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í október 2008.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 18,8%.