Vísitala framleiðsluverðs lækkar um 0,1% á milli mánaða og mælist nú 118,2 stig samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 119,7 stig, lækkaði um 1,0% og vísitala fyrir stóriðju var 143,3 stig, lækkaði um 1,3%. Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,9% frá maí.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 0,7%. Undanfarið ár eða frá því í júní 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,8%. Á sama tímabili hafa sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 4,5% og afurðir stóriðju um 14,8% en matvæli hafa hækkað um 2,3%.