Vísitala launa er 121,8 stig á þriðja ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 1,3% frá fyrri ársfjórðungi. Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 1,0%, samkvæmt því sem segir á vef Hagstofu Íslands.

Árshækkun vísitölu launa var 8,8% á þriðja ársfjórðungi 2007, 9,4% á almennum vinnumarkaði og 7,4% hjá opinberum starfsmönnum.

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir starfsstétt Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá skrifstofufólki og sérfræðingum, 1,9% en minnst hjá iðnaðarmönnum, 0,9%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá þriðja ársfjórðungi 2006 eða um 12,2% en regluleg laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 7,7%.

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða 2,4% en minnst var hækkunin í iðnaði 1,1%.  Frá þriðja ársfjórðungi 2006 hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum mest eða um 15,5% en minnst var hækkunin í iðnaði 7,4%.