Nemandi í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík hefur opnað nýja fataverslun á Laugaveginum, þar sem seldur er fatnaður frá Naketano. Verslunin nefnist Tara.

Aníka Rós Páls kynntist fatnaði Naketano í fyrst á MySpace vefsíðu og hreifst af honum. Í kjölfarið hafði hún samband við eigendur vörumerkisins og varð umboðsmaður þess á Íslandi.

Flestar flíkur frá Naketano eru úr kembdri bómull. Þá eru valdar flíkur fyrirtækisins úr efninu Modal sem búið er til úr trjákvoðu og er mýkra en bómull. Nýja verslunin er staðsett við Laugaveg 54.