Að mati Viðskiptaráðs er helsta áhyggjuefni yfirlýsingar ríkisstjórnarinar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þær þröngu skorður sem settar eru á lausafé frá Seðlabanka Íslands. Skilyrði um veðhæfni bréfa hefur verið takmörkuð og gert er ráð fyrir að aukning í lánum frá Seðlabanka til bankakerfisins verði lítil sem engin segir í tilkynningu Viðskiptaráðs.

,,Þar er bent á að ljóst sé að mikill skortur verður á lánsfjármagni til íslenskra fyrirtækja og heimila verði ekkert að gert. Fjárþörf hins opinbera verður mikil á næstunni og því hætt við að enn erfiðara verði fyrir fyrirtæki að nálgast lánsfé en ella. Úr þessu þarf að bæta eins fljótt og auðið er.

Viðskiptaráð fagnar þeirri aðhaldssömu langtímastefnu sem mörkuð er í ríkisfjármálum enda mikilvægt að aukið svigrúm verði skapað fyrir einkaaðila við fyrsta tækifæri. Fjármálaráðuneytið hefur þegar beint þeim tilmælum til allra ráðuneyta að senda tillögur um hvernig koma megi í veg fyrir þá miklu útgjaldaaukningu sem áætluð var í fjárlögum 2009.

Utanríkisráðuneyti hafði þegar lagt fram tillögur sem miðuðu að því að útgjöld vegna utanríkismála myndu ekki aukast. Þessu ber að fagna. Í þessu samhengi er vert að minnast á 90 tillögur Viðskiptaráðs að bættri samkeppnishæfni íslensks hagkerfis, sem gefnar voru út í September á síðasta of hægt er að nálgast hér. Ein af tillögunum var sú að ríkisútgjöld yrði skorin niður um fimmtung enda hafa þau farið hratt vaxandi  síðustu tvo áratugi. Í skýrslunni voru margar tillögur sem ættu að geta nýst vel til að skapa það hagræði í ríkisrekstri sem nú er nauðsynlegt," segir í tilkynningu.