Útflutningsráð og Ferðamálastofa gangast fyrir Íslandskynningu í Tokyo þriðjudaginn 3. mars í samvinnu við sendiráð Íslands í Tokyo og JATA – Japan Association of Travel Agents.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.

Þar kemur fram að kynningin er hluti af viðskiptasendinefnd sem verður með  sérstaka áherslu á orkumál, ferðamál og fjárfestingar.

Auk þessarar kynningar verður haldinn vinnufundur með ferðaskrifstofum sem áhuga hafa á Íslandi sem áfangastað.

Sjá nánar vef Ferðamálastofu.