Fjömiðlar hafa greint frá því að viðskipti með hlutabréf í Straumi hafi átt að hefjast í dag en samkvæmt tilkynningu frá Straumi verður svo ekki.

Vinnureglan er þannig að Fjármálaeftirlitið ákveður hvenær viðskiptin hefjast og tilkynnir Kauphöllinni það samdægurs, sem setur svo viðskiptin í gang.

„Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvenær þau hefjast," segir Úrsula Ingvarsdóttir hjá Fjármálaeftirlitinu í samtali við Viðskiptablaðið.