Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá Bónus, Hagkaupum og Tíu-ellefu á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í apríl og júní. Vörukarfan hefur hins vegar hækkað í verði hjá Krónunni, Nettó, Iceland, Nóatúni, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Víði á síðustu þremur mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Hækkunin er mest hjá Samkaupum-Strax eða 1,4% en verð vörukörfunnar lækkar mest hjá Tíu-ellefu og Bónus eða um 1%. Þá lækkar verðið hjá Hagkaupum um 0,9%. Miklar verðsveiflur eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum en mesta hækkunin er í sælgæti hjá Bónus um 6% og mesta lækkunin er í kjötvörum hjá Víði um 8,6%.

Þess má geta að einungis er um verðbreytingar milli verðmælinga að ræða, ekki um beinan verðsamanburð, þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna er að ræða.