Vörður, vátryggingafélag opnaði í dag söluskrifstofu í Hagkaupum í Smáralind. Á söluskrifstofunni í Hagkaupum fást allar upplýsingar um heimilis- og bílatryggingar og þar munu ráðgjafar félagsins aðstoða við kaup á tryggingum.

Að sögn Sigurðar Sveinssonar, útibússtjóra Varðar á höfuðborgarsvæðinu er nýja aðstaðan í Smáralind kærkomin viðbót. Þetta er í fyrsta sinn sem tryggingafélag hér á landi opnar söluskrifstofu í stórmarkaði og vill félagið með þessu auka þjónustu við ört stækkandi hóp viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu.

Gestum á söluskrifstofu Varðar í Smáralind gefst kostur á að taka þátt í verðlaunagetraun þar sem vinningar eru m.a. helgarferð fyrir tvo til London með Iceland Express, áskrift að Stöð 2 og matarkörfur frá Hagkaupum.

Söluskrifstofur Varðar eru á Akureyri og í Reykjavík en auk þess eru umboðsmenn starfandi í Bolungarvík, á Akranesi, á Hornafirði, á Hvolsvelli, í Keflavík, Þorlákshöfn og Hveragerði.