Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2015 voru vöruskiptin í  júní óhagstæð um tæpa 10,4 milljarða. Hagstofan greinir frá því að útflutningur fob var 56 milljarðar króna og innflutningur tæpir 66,4 milljarðar króna.

Athygli er vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.